Header Paragraph

Síðasta staðnámsvika ARCADE námskeiðsins á Grænlandi

Image

Í síðustu viku fór þriðja og síðasta staðnámsvika Arcade námskeiðsins fram í Nuuk, Grænlandi. Þar kom saman öflugur hópur nemenda úr ýmsum fræðigreinum sem eiga það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á málefnum norðurslóða. 

ARCADE er þverfaglegt námskeið sem að byggir á að styðja við nýsköpun og að tengja saman rannsóknir og sérhæfingu ólíkra fræðasviða til þess að bregðast við þeim margvíslegu áskorunum sem steðja að norðurslóðum vegna loftslagsbreytinga. 

Í Nuuk fengu nemendur meðal annars kynningu frá Naaja Nathanielsen, fjármála- og jafnréttisráðherra Grænlands og Söru Olsvig, formanni heimskautaráðs Inúíta. Auk þess heimsóttu þau aðalsræðismann íslands og dönsku herstjórnina í Nuuk (e. the Arctic Command). Nemendurnir tóku þátt í fróðlegum fyrirlestrum frá fræðafólki í Ilisimatusarfik háskólanum og fóru í dagsferð á bati til Qooqqut í Nuuk firðinum. 

Næsta stopp verður á Arctic Circle í október þar sem slegið verður botninn í 10 mánaða námskeið.

Að námskeiðinu koma Rannsóknasetur um norðurslóðir og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands í samstarfi við Ilisimatusarfik háskólann í Nuuk, UiT Norges arktiske universitet í Tromsø, The Arctic Initiative við Kennedy skólann við Harvard háskóla og Hringborð norðurslóða, Arctic Circle.

Nánari upplýsingar um ARCADE má finna á heimasíðu námskeiðsins.

Myndir frá Grænlandsferðinni

Image
Fyrirlestur fyrir ARCADE nema í Nuuk
Image
Bátsferð á Grænlandi
Image
Dansað á steini í Grænlandi
Image
ARCADE nemendahópurinn á Grænlandi