Header Paragraph

Nýr verkefnisstjóri við Stofnun Sæmundar fróða

Image
Sæmundur á selnum

Hafdís Hanna Ægisdóttir hóf störf sem verkefnisstjóri við Stofnun Sæmundar fróða 1. september síðastliðinn.

Hún er líffræðingur (BS, MS) frá Háskóla Íslands og lauk doktorsprófi í plöntuvistfræði frá Háskólanum í Basel í Sviss árið 2007. Hún starfaði sem forstöðumaður Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2009 -2020, og hefur einnig unnið við ráðgjöf fyrir utanríkisráðuneytið á sviði sjálfbærni, endurheimtar vistkerfa og alþjóðlegrar þróunarsamvinnu.

Hún er reglulegur pistlahöfundur um umhverfismál í þættinum Samfélagið á Rás 1 og hefur auk þess haldið fjölmörg erindi víða um heim, m.a. á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og hjá TEDx Reykjavík. Á árunum 2018-2019 var Hafdís Hanna fyrsta íslenska konan til að taka þátt í alþjóðlegu leiðtoganámi fyrir konur í vísindum, Homeward Bound.

Hún hefur setið í ýmsum nefndum frjálsra félagasamtaka og nefnda á vegum hins opinbera, t.a.m.  í stýrihópi sem ætlað er það hlutverk að undirbúa nýja stefnumótun og framkvæmdaráætlun fyrir líffræðilega fjölbreytni hér á landi.

Titill
Hafdís Hanna Ægisdóttir

Texti

Hafdís Hanna Ægisdóttir hóf störf sem verkefnisstjóri við Stofnun Sæmundar fróða 1. september síðastliðinn.

Mynd
Image
Hafdís Hanna Ægisdóttir