Header Paragraph

Málþing um kvikmyndir og líffræðilega fjölbreytni

Image

BIODICE, RIFF og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands standa fyrir málþingi um hlutverk kvikmynda við vísindamiðlun þann 3. október nk. í Ráðhúsi Reykjavíkur frá 16.00-18.00.

Markmið málþingsins er að vekja athygli á því hve öflugur miðill listir og þá sérstaklega kvikmyndir geta verið þegar kemur að því að fræða um flókin hugtök í vísindum og koma áleiðis mikilvægum skilaboðum. Kvikmyndir og heimildamyndir eru þannig gagnleg verkfæri þegar koma þarf af stað vitundarvakningu um mikilvæg samfélagsleg málefni á borð við loftslagsbreytingar og hnignun líffræðilegrar fjölbreytni.

Málþingið mun byrja á heiðrun og meistaraspjalli við Luc Jacquet, sem er heimsþekktur kvikmyndagerðarmaður og líffræðingur og hafa heimildarmyndir hans um loftslagsbreytingar og líf á Suðurskautslandinu snert marga áhorfendur og hjálpað til við að opna augu margra fyrir alvarlegum afleiðingum athafna mannanna á náttúruna.

Á málþinginu þann 3. október verður sjónum beint að verkum Lucs á Suðurheimskautinu og þau sett í samhengi við bráðnandi ís og tap á líffræðilegri fjölbreytni á norðurslóðum.

Myndir úr smiðju Luc verða sýndar á RIFF í ár; nýja myndin hans Antarctica Calling og hin gamalkunna March of the Penguins.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mun veit Luc heiðursverðlaunin Græna Lundann fyrir framlag sitt til líffræðilegar fjölbreytni og loftslagsmála, að meistaraspjalli loknu.

Viðburðurinn er hluti af Hátíð líffræðilegrar fjölbreytni 2023 sem BIODICE stendur fyrir en markmið hátíðarinnar er að ná til sem flestra til að vekja athygli á hugtakinu líffræðileg fjölbreytni en hnignun hennar er ein af stærstu áskorunum samtímans.

Viðburðurinn er öllum opinn.

Dagskrá
16:00 Fundarstjóri setur málþingið
16:05 Meistaraspjall við Luc Jacquet
16:50 Heiðursviðurkenningin Græni lundinn veitt Luc Jacquet af Umhverfisráðherra
17:00 Pallborðsumræður
17:55 Málþingi slitið
Fundarstjóri: Sverrir Norland, rithöfundur

Í pallborði verða:

Luc Jacquet, kvikmyndagerðarmaður og líffræðingur
Andri Snær Magnason, rithöfundur
Hafdís Hanna Ægisdóttir, líffræðingur og forstöðukona Sjálfbærnistofnunar HÍ
Unnur Björnsdóttir, Ungir umhverfissinnar