Header Paragraph

Kolefnismarkaðir og tengsl þeirra við löggjöf og stefnumótun um loftslagsmál

Image
Þjóðarspegill í Hátíðarsal HÍ

Hvaða hlutverki gegna kolefnismarkaðir í loftslagsaðgerðum? Hvernig tengjast þeir skuldbindingum, löggjöf og stefnumótun íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum? Hvaða reglur gilda um viðskipti með kolefniseiningar og kolefnisjöfnun?

Lagastofnun Háskóla Íslands, í samvinnu við Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands, efnir til málþings miðvikudaginn 23. ágúst nk. um kolefnismarkaði og tengsl þeirra við löggjöf og stefnumótun um loftslagsmál. Málþingið fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins kl. 9:00–15:15. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Einnig verður hægt að fylgjast með viðburðinum í streymi 

Málþinginu er ætlað að skapa vettvang fyrir faglega umræðu um hlutverk kolefnismarkaða í baráttunni gegn loftslagsvandanum og draga upp mynd af því hvernig þeir nýtast sem opinbert stjórntæki í loftslagsmálum og sem aðferð til að afla fjármagns í loftslagstengd verkefni. Sérstaklega verður fjallað um samspil viðskipta með kolefniseiningar við löggjöf og stefnumótun í loftslagsmálum á Íslandi og verður sjónum beint að tækifærum, áskorunum og álitaefnum sem slík viðskipti hafa í för með sér.

Dagskrá málþingsins er tvískipt: Í fyrri hluta þess, sem fer fram á ensku, munu erlendir og innlendir sérfræðingar fjalla um viðskipti með kolefniseiningar í alþjóðlegu samhengi og helstu stefnur og strauma á alþjóðlegum kolefnismörkuðum. Í síðari hluta málþingsins, sem fer fram á íslensku, munu innlendir sérfræðingar og fulltrúar stjórnvalda, atvinnulífsins og umhverfissamtaka, fjalla um kolefnismarkaði frá íslensku sjónarhorni, með áherslu á þróun viðskipta á valkvæðum kolefnismarkaði hér á landi. Nánari dagskrá má sjá á vefsíðu Lagastofnunar Háskóla Íslands.

Fyrirlesarar: Ash Sharma, stjórnandi hjá NEFCO, Jonathan Wiener, prófessor í lögfræði, stjórnsýslu umhverfismála og opinberri stjórnsýslu við Duke University, Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, Cathrine Wenger, lögmaður, Eve Tamme, alþjóðlegur ráðgjafi, Hrafnhildur Bragadóttir, aðjúnkt og doktorsnemi við Lagadeild Háskóla Íslands, Gunnar Sveinn Magnússon, yfirmaður sjálfbærniráðgjafar Deloitte.

Viðburðurinn er styrktur af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, matvælaráðuneytinu og utanríkisráðuneytinu.