Header Paragraph

Byggjum framtíð: Málþing um sjálfbæra mannvirkjagerð

Image

Ljóst er að kolefnisspor bygginga er mikið og hefur áhrif um allan heim; bæði á náttúru og samfélög í nútíð og framtíð. Staðlar núgildandi reglugerða heimila byggingar sem ekki standast kröfum sjálfbærni en um leið setja þær tilraunastarfsemi í byggingageiranum skorður. Framtíð jarðarinnar og okkar allra er í húfi og róttækra breytinga er þörf. Hvernig á að byggja næstu 100 árin?

Verið velkomin á viðburðinn Byggjum framtíð sem haldinn er í tengslum við sýninguna Wasteland sem nú er til sýnis í Norræna húsinu. Viðburðurinn er haldinn á vegum Norræns samstarfs, Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands og Lendager á Íslandi í tilefni af þema umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs í ár sem er sjálfbær byggingariðnaður.

Lykilerindi viðburðarins verða flutt af Hólmfríði Þorsteinsdóttur, formanni dómnefndar umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs, Arnhildi Pálmadóttur, eiganda Lendager Ísland, sem stendur að Wasteland sýningunni, og Önnu Maríu Bogadóttur, sem tilnefnd er til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 fyrir verk sitt Jarðsetning. Í kjölfar erindanna munu Arnhildur og Anna María taka þátt í pallborði ásamt Þóru Margréti Þorgeirsdóttur, verkefnastjóra Byggjum grænni framtíð. Í pallborðinu verður framtíð byggingariðnaðarins hér á landi og tækifærin sem liggja í aukinni hringrás og sjálfbærni rædd í ljósi yfirstandandi endurskoðun á byggingarreglugerðinni. Fundarstjóri er Andri Snær Magnason.

Viðburðinum lýkur með leiðsögn um Wasteland sýninguna sem stendur yfir í Hvelfingu, sýningarsal Norræna hússins. Boðið verður upp á léttar veitingar.